Kökuform!!

Kökuformin okkar verða vinsælli með hverjum deginum. Lánstíminn er 30 dagar og við biðjum fólk auðvitað um að þrífa formin áður en þeim er skilað. Undir flipanum "Til útláns" má sjá 'Kökuform' og þar eru myndir af öllum formunum sem við eigum.

Þar er líka hlekkur á lista yfir öll kökuformin sem hægt er að hala niður og skoða í rólegheitum áður en pantað, lánað og bakað er!

Verði ykkur að góðu!

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan