Jólapeysan 2017

Hver peysa verður einstök!
Hver peysa verður einstök!

Laugardaginn 2. desember kl. 13:00-15:00 segjum við naumhyggjunni stríð á hendur. Í samvinnu við Rauða krossinn býður Amtsbókasafnið öllum sem vilja upp á afar smekklaust jólapeysuföndur. Litir, prjál og pallíettur - já takk! Góður slatti af peysum verður á staðnum, en ef þú átt nýjar/gamlar peysur sem þú vilt losa þig við þá geta þær öðlast framhaldslíf með nokkrum jólalegum tilfæringum. Allt jólaskraut er einnig vel þegið. More is more! 

Hlustum á jólalög og föndrum saman jólapeysur! Góð samverustund fyrir alla fjölskylduna. 

 

 

Amtsbókasafnið er á Facebook og Instagram.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan