Hjólað í vinnuna - góður árangur

Amtsbókasafnið og Héraðsskjalasafnið stóðu sig vel í vinnustaðakeppninni Hjólað í vinnuna sem fram f…
Amtsbókasafnið og Héraðsskjalasafnið stóðu sig vel í vinnustaðakeppninni Hjólað í vinnuna sem fram fór í maí.

Amtsbókasafnið og Héraðsskjalasafnið hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur í vinnustaðakeppninni Hjólað í vinnuna sem fram fór í maí. Söfnin lentu í fjórða sæti á Akureyri, en í ellefta sæti á landsvísu á meðal liða með svipaðan fjölda þátttakenda. Ellert Örn Erlingsson deildarstjóri íþróttadeildar Akureryrarbæjar færði Amtsbókasafninu og Héraðsskjalasafninu viðurkenningarskjal sem Lára Ágústa Ólafsdóttir, skjalavörður á Héraðsskjalasafni, veitti viðtöku ásamt Hrönn Björgvinsdóttir bókaverði.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan