Haustfrí á Amtsbókasafninu

Öll börn eru hjartanlega velkomin á Amtsbókasafnið í haustfríum grunnskólanna. Ýmislegt verður í boði: 

SÖGUSTUND
Fimmtudaginn 17. október kl. 16:30 verður sögustund í barnadeild. Þura mun lesa barnabækur sem höfða til yngstu kynslóðarinnar og í framhaldinu verður boðið upp á föndur.

BINGÓ!
Föstudaginn 18. október kl. 14:00 verður boðið upp á Bingó á Amtsbókasafninu. Heppnir þátttakendur fá vinninga úr deilihagkerfinu (Hertex, Rauði krossinn og Fjölsmiðjan). Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

ÚRKLIPPUSMIÐJA
Laugardaginn 19. október eru allir velkomnir í opna úrklippusmiðju sem fer fram á Orðakaffi. Á staðnum verða gömul afskrifuð tímarit og bækur ásamt skærum, límstiftum og lituðum blöðum. Smiðjan stendur yfir kl. 11-15. Verið öll velkomin!

Ath. Orðkaffi verður lokað á meðan viðburður stendur yfir.

FULLT AF SKEMMTILEGUM BÓKUM
Á Amtsbókasafninu er til ógrynni af bókum fyrir börn og fullorðna. Það getur verið notalegt að hlamma sér á grjónapoka og ferðast inn í heim bókanna.

TEIKNUM SAMAN
Það er alltaf í boði að teikna í barnabókadeildinni. Búið verður að prenta úr myndir sem hægt er að lita, en svo er einnig hægt að teikna frjálst. Látum hugan reika og teiknum saman.

SPILUM SAMAN
Fullt af spilum eru til útláns á bókasafninu. Bæði er hægt að fá þau lánuð heim eða spila þau á staðnum. 

BÚNINGAFJÖR
Í vetrarfríinu drögum við fram búningana okkar góðu svo ungir gestir geti brugðið sér í hin ýmsu gervi. Búningana er að finna í barnabókadeild safnsins.

TEFLUM
Nú er komið tafl á 2. hæð safnsins. 

SKOÐUM RAFBÓKASAFNIÐ
Til eru fullt af skemmtilegum bókum fyrir börn og ungmenni á Rafbókasafninu! Það eina sem þarf til er gilt bókasafnsskírteini, snjalltæki eða tölvu og appið Libby eða Overdrive. Þá eru þér allir vegir færir á Rafbókasafninu. Svo er alltaf hægt að biðja um aðstoð á Amtsbókasafninu.

Bækur fyrir börn og unglinga á Rafbókasafninu, smellið hér.

KAKÓ OG KÖKUR
Kaffihúsið Orðkaffi er staðsett á 1. hæð safnsins. Þar er hægt að kaupa rétt dagsins í hádeginu, panini samlokur, gómsætar tertur og smákökur. Hvernig væri að gera vel við sig og sína í haustfríinu!

 

Við hlökkum til að sjá ykkur! 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan