Gleðilegt nýtt ár!

2017 hefur alla burði til þess að verða frábært ár!
2017 hefur alla burði til þess að verða frábært ár!

Gleðilegt nýtt ár, kæru safngestir og vinir!

2016 hefur kvatt og 2017 tekið við. Við stöndum vaktina á virkum dögum 10:00-19:00 og 11:00-16:00 á laugardögum. Fyrir þau ykkar sem viljið borða eitthvað annað en kjöt, þá eigum við bækur fyrir ykkur ;-) Fyrir þau ykkar sem lásuð ekki nóg yfir hátíðirnar þá eigum við fullt af skemmtilegum bókum til að lesa og það er svo einfalt að panta bækur sem ekki eru inni í augnablikinu. Fyrir þau ykkar sem viljið horfa á eitthvað annað en N4, RÚV, Sjónvarp Símans, Stöð 2, Netflix eða aðrar stöðvar, þá erum við með um 4000 mynddiska til að fá lánaða (kvikmyndir eða sjónvarpsseríur). Fyrir þau ykkar sem viljið fletta blöðum með myndum af fótósjoppuðu fólki og einnig ófótósjoppuðu, þá er Hello, Billed, Séð og heyrt og allir ættingjar þeirra í hillunum okkar. Fyrir þau ykkar sem söknuðu andrúmsloftsins á Amtsbókasafninu yfir þá daga sem safnið var lokað, þá bendum við á fyrrnefndan afgreiðslutíma - komið og fáið ykkur kaffi og meððí hjá Serenu á Orðakaffi ... lesið nýjustu blöðin og tímaritin... njótið þess að vera á Amtinu. -- Við gerum það alla vega. 2017 verður frábært!!! Sjáumst!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan