Fyrsti fundur ritfanga

Annan hvern þriðjudag í vetur ætlum við að hafa opna fundi á Amtsbókasafninu fyrir þau sem hafa áhuga á skapandi skrifum.
Þá verður annar hver fundur nýttur í að gera margs konar ritæfingar og ræða ólíkar nálganir á skrif, en hinir fundirnir fara í stutta upphitun og svo þögla skrifsetu, eða svokallaðar Ritfangabúðir, þar sem hver vinnur í sínum eigin skrifum.
Fyrsti fundur verður á Orðakaffi frá kl. 16:30-18:30, þriðjudaginn 28. september.
Fólk á öllum aldri hjartanlega velkomið þegar það kemst og skráning er óþörf.
Sesselía Ólafsdóttir, leikkona handritshöfundur og Vandræðaskáld, heldur utan um hópinn og hún getur veitt nánari upplýsingar á netfanginu sessy@amtsbok.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan