(svarmynd komin) Föstudagsþraut 2024 nr. 16 - Alþjóðlegt eldhús og fimm breytingar!

(svarmynd komin) Kæru matarelskandi og þrautaleysandi safngestir og velunnarar! Velkomin í enn einn föstudaginn og hér kemur þraut númer 16 þetta árið! Í kjölfar þess að viðburðurinn „Alþjóðlegt eldhús 2024“ heppnaðist svo einstaklega vel í gær (um 750 gestir komu og smökkuðu mat frá 18 löndum), þá er þrautin tileinkuð honum!

Þessi mynd sýnir einungis borðið hjá Venesúela en vissulega voru dásamlegar veitingar hjá öllum átján þjóðunum. Takk fyrir okkur, kæra fólk sem hélt utan um þetta og auðvitað þau sem sáu um eldamennskuna. Fólk var ánægt, veðrið var frábært og matarlystin líka! 

Rétt svör koma svo auðvitað eftir helgi, á mánudaginn! Munið að það er opið á laugardögum hjá okkur (til 15. maí) milli 11-16, en vonandi eigið frábæra helgi.

Við sjáumst alltaf hress á Amtinu!

 

Borð með alls kyns veitingum frá Venesúela

 

Breytingar merktar með rauðu:

Matur í fötum og potti á borði með fána framan á (Venesúela)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan