Potterhátíðin mikla

Síðustu vikuna í júlí verður sannkölluð Potterveisla á Amtsbókasafninu!

Í ár á Harry stórafmæli en hann verður fertugur þann 31. júlí, þess vegna dugar ekkert minna en þriggja daga skemmtun.
Dagana 29. – 31. júlí verður því nóg um að vera á Amtsbókasafninu, ekki missa af afmælisveislu ársins!

Miðvikudagur 29. júlí

  • Flóttinn úr Hogwarts – Escape room kl. 14-18. Í kjallara bókasafnsins verður flóttaherbergi, hefur þú það sem til þarf til að leysa þrautirnar og komast út? Herbergið er fyrir 2-6 manna hópa á öllum aldri og tekur um 10 mínútur að komast út. UPPBÓKAÐ!
  • Galdrakústasmiðja 15-17. Búðu til þinn eigin galdrakúst! Bæði verður hægt að gera kústa í fullri stærð og litla kústa sem sóma sér vel á hvaða hillu sem er. Einnig verður hægt að búa til töfrasprota. Með kúst og sprota að vopni verða þér allir vegir færir.

Fimmtudagur 30. júlí

  • Flóttinn úr Hogwarts – Escape room kl. 14-18. Í kjallara bókasafnsins verður flóttaherbergi, hefur þú það sem til þarf til að leysa þrautirnar og komast út? Herbergið er fyrir 2-6 manna hópa á öllum aldri og tekur um 10 mínútur að komast út. UPPBÓKAÐ!
  • Leitin að helkrossum kl. 14-18. Sá sem ekki má nefna hefur falið sjö helkrossa á fyrstu hæð bókasafnsins. Ef þú getur fundið þá alla færð þú að launum að bragða á Fjölbragðabaunum Berta Bott, þorir þú að smakka?
  • Hvaða heimavist tilheyrir þú? Kl. 14-18. Ert þú þolinmóður og góðhjartaður Hufflepuff? Hugrakkur Gryffindor? Metnaðargjarn Slytherin? Eða klár og skapandi Ravenclaw? Fáðu út því skorið í eitt skipti fyrir öll.
  • Galdra-origami kl. 15-17. Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá sendan öskrara? Nú er tækifærið! Brjóttu saman þinn eiginn flokkunarhatt eða öskrara, lengra komnir origami-unnendur geta einnig gert uglur eða einhyrninga.

Föstudagurinn 31. júlí – Til hamingju með daginn Harry!

  • Flóttinn úr Hogwarts – Escape room kl. 14-16. Í kjallara bókasafnsins verður flóttaherbergi, hefur þú það sem til þarf til að leysa þrautirnar og komast út? Herbergið er fyrir 2-6 manna hópa á öllum aldri og tekur um 10 mínútur að komast út. UPPBÓKAÐ!
  • Leitin að helkrossum kl. 14-18. Sá sem ekki má nefna hefur falið sjö helkrossa á fyrstu hæð bókasafnsins. Ef þú getur fundið þá alla færð þú að launum að bragða á Fjölbragðabaunum Berta Bott, þorir þú að smakka?
  • Hvaða heimavist tilheyrir þú? Kl. 14-18. Ert þú þolinmóður og góðhjartaður Hufflepuff? Hugrakkur Gryffindor? Metnaðargjarn Slytherin? Eða klár og skapandi Ravenclaw? Fáðu út því skorið í eitt skipti fyrir öll.
  • Quidditch kl. 15-17. "Kústar upp!". Venju samkvæmt verður Quidditch á flötinni fyrir framan bókasafnið. Kústar verða á staðnum, ímyndunaraflið gerir ykkur kleift að fljúga.
  • Föndraðu heimavistarbindi kl. 15-17. Nú þegar þú veist hvaða heimavist þú tilheyrir er upplagt að búa til bindi í réttum litum, bindið er einnig hægt að nota sem bókamerki!
  • Flóttaherbergið til sýnis kl 16-18. Öllum muggum gefst nú kostur á að skoða sig um í flóttaherbergi Hogwarts.

Alla dagana

  • Pósaðu í galdraheiminum. Myndaklefi þar sem þú getur svifið yfir Quidditch-vellinum, verið hættulegur strokufangi úr Azkaban og margt fleira!

Allir hjartanlega velkomnir og sérstaklega þeir sem mæta í búningum!

 

Skoðaðu fleiri spennandi viðburði á www.listasumar.is

*Viðburðurinn er hluti af Listasumri.

Samstarfsaðilar Listasumars eru:

Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Rósenborg, Gilfélagið, Menningarhúsið Hof, Sundlaug Akureyrar, Iðnaðarsafnið, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Geimstofan, Myndlistarfélagið.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan