Bókarkynning: Mamma, ég er á lífi

Bókarkynning
Bókarkynning

Mamma, ég er á lífi – íslenskir piltar í víti heimsstyrjaldar
Höfundur: Jakob Þór Kristjánsson 

Fimmtudaginn 7. desember kl. 17:00 verður rithöfundurinn Jakob Þór Kristjánsson með bókarkynningu um nýútkomna bók sína Mamma, ég er á lífi - íslenskir piltar í víti heimsstyrjaldar.

 

Íslenskir piltar sem flust höfðu til Kanada gengu glaðir í herinn í fyrri heimsstyrjöld og vildu leggja lið sínu nýja heimalandi.

Þeir áttu eftir að upplifa hræðilegt blóðbað, miklar þjáningar í drullusvaði skotgrafanna, eiturgas, dráp og dauða. Þeir börðust á alræmdum sláturvöllum eins og við Somme, Passendaele og Verdun.

Í bréfum og frásögnum reyndu þeir að lýsa sinni ótrúlegu reynslu. Átakanleg mynd af ungum piltum við skelfilegar aðstæður.

 

Allir velkomnir! 

 

Amtsbókasafnið er á Facebook og Instagram.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan