Fréttasafn

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Upplýsingar um orlof starfsmanna

Upplýsingar um orlof starfsmanna

• Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert. • Sumarorlofstími er frá 15. maí til 30. september ár hvert.
Lesa fréttina Upplýsingar um orlof starfsmanna

Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar

Á fréttasíðu RÚV, www.ruv.is, er að finna frétt um veitingu hvatningarverðlauna garðyrkjunnar - verðlaunin hlaut Jóhann Thorarensen garðyrkjumaður en hann er upphafsmaður matjurtagarða Akureyrarbæjar. Við hvetjum alla til þess að kynna sér málið með því að smella HÉR.
Lesa fréttina Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar
Leiðbeiningar vegna vefpósts

Leiðbeiningar vegna vefpósts

Í starfsmannahandbókinni er hægt að nálgast leiðbeiningar vegna innskráningar á vefpóst - leiðbeiningarnar eru undir flipanum Skjalakerfi og vefpóstur og heita Innskráning á vefpóst. Hægt er að smella HÉR.
Lesa fréttina Leiðbeiningar vegna vefpósts
Ert þú ný/r í starfi?

Ert þú ný/r í starfi?

Þegar starfsmaður hefur störf hjá Akureyrarbæ er mikilvægt að hann skili inn gögnum og upplýsingum til launadeildar eins fljótt og auðið er, best er að gera það í samráði við yfirmann. Þar má nefna skráningu á persónuafslætti í gegnum íbúagáttina. Skil á prófskírteinum og starfsvottorðum ef við á og svo má ekki gleyma upplýsingum um séreignarsjóði. Nánari upplýsingar má nálgast hér.
Lesa fréttina Ert þú ný/r í starfi?
Lokað á búsetusviði í apríl 2020 í tilefni afmælis Danadrottingar?

Lokað á búsetusviði í apríl 2020 í tilefni afmælis Danadrottingar?

Í dag, 16. apríl komu starfsmenn á skrifstofu búsetusviðs saman að fagna 79 ára afmæli Margrétar Þórhildar Danadrottningar. Einnig var fagnað afmæli Lambsins Einars, aldur hans er óviss og engar upplýsingar að fá frá honum. Í tilefni dagsins tóku starfsmenn sem eiga afmæli í apríl sig saman og buðu samstarfsfélögum sínum upp á veitingar. Löng hefð hefur verið hér fyrir því að fagna afmæli Margrétar Þórhildar og því kemur vel til greina að loka þurfi skrifstofunni á næsta ári þegar Margrét Þórhildur Danadrotting verður 80 ára. Fastlega er gert ráð fyrir boðskorti innan tíðar.
Lesa fréttina Lokað á búsetusviði í apríl 2020 í tilefni afmælis Danadrottingar?
Starf og staða á launaseðli

Starf og staða á launaseðli

Samkvæmt kjarasamningum er vinnuveitanda skylt að birta starfsheiti starfsmanna á launaseðlum eins og þau eru skilgreind í kjarasamningum eða starfsmati. Á launaseðlum hjá Akureyrarbæ eru þess vegna birt tvö starfsheiti annars vegar starf sem er starfsheiti samkvæmt kjarasamningi eða starfsmati og hins vegar staða sem er starfsheiti samkvæmt starfslýsingu viðkomandi starfsmanns. Staða er embætti/staða sem setin er af einum starfsmanni skv. starfslýsingu. Dæmi: Hjúkrunarfræðingur Lögmannshlíð, Kennari Síðuskóla og Verkstjóri vinnuskóla. Þetta eru starfsheiti sem notuð eru dagsdaglega í allri umræðu og við undurritun bréfa t.d. Heiti á stöðu er hægt að breyta án mikillar fyrirhafnar eftir þörfum að ósk stjórnenda, en þó er þess gætt að ákveðið samræmi sé viðhaft milli hinna ýmsu stofnana og starfa. Starf er yfirheiti yfir margar stöður og er þar stuðst við starfsheiti skv. kjarasamningi eða starfsmati sem launaröðun byggir á. Dæmi: Hjúkrunarfræðingur Lögmannshlíð er í starfinu Hjúkrunarfræðingur 3 ásamt mörgum öðrum hjúkrunarfræðingum hjá Akureyrarbæ. Nú þegar starfsmat aðildarfélaga BHM er að koma til framkvæmda birtist starfsheiti í starfsmati sem viðkomandi starf er tengt við sem starf á launaseðli. Dæmu um starfsheiti í starfsmati BHM er: ÞÍ – BHM 53 – Þroskaþjálfi (málefni fatlaðra.Fremst í heitinu er skammstöfun félagsins sem um ræðir, síðan kemur númer starfsins í starfsmati BHM og að lokum starfsheitið sjálft. Hér er síðan dæmi um hvernig starf og staða birtist á launaseðlum Akureyrarbæjar:
Lesa fréttina Starf og staða á launaseðli
Áfallasaga kvenna - bæjarstjóri hvetur konur til þátttöku

Áfallasaga kvenna - bæjarstjóri hvetur konur til þátttöku

Á vormánuðum 2018 hófst metnaðarfullt rannsóknarverkefni á vegum vísindamanna við Háskóla Íslands, Áfallasaga kvenna. Rannsóknin miðar að því að skapa þekkingu á umfangi, áhættuþáttum og heilsufarslegum afleiðingum áfalla og ofbeldis gegn konum en samfélagsleg umræða síðasta árs sýnir að það er mikilvægt að varpa ljósi á vægi áhrifa þessara þátta á heilsufar kvenna hér á landi. Rannsóknin er fjármögnuð af Evrópska rannsóknarráðinu og Rannís og er ein stærsta vísindarannsókn sem framkvæmd hefur verið á þessu sviði á heimsvísu.   Öllum konum á Íslandi, 18 ára og eldri, býðst að taka þátt í rannsókninni með því að svara rafrænum spurningalista um áfallasögu sína og heilsufar. Viðtökur við rannsókninni hafa verið góðar - hingað til hafa rúmlega 30 þúsund konur tekið þátt í rannsókninni en skráning nýrra þátttakenda stendur yfir til 1. maí nk.   Vísbendingar eru þegar til staðar um að áföll og ofbeldi hafi hugsanlega enn meiri áhrif á heilsufar og sjúkrafjarvistir kvenna en hingað til hefur verið talið. Rannsóknin Áfallasaga kvenna er mikilvægur liður í því að skapa örugga vísindalega þekkingu á algengi og vægi áfalla í heilsufari kvenna og það er sannarlega sameiginlegt hagsmunamál okkar allra. Með þekkingu breytum við heiminum!   Ég hvet allar konur til að taka þátt í verkefninu þar sem góð þátttaka kvenna skiptir sköpum fyrir vísindalegt gildi rannsóknarinnar og svör allra kvenna skipta máli óháð því hvort þær eiga mikla, litla eða enga sögu um áföll. Allar upplýsingar um rannsóknina  má finna á vefsíðunni www.afallasaga.is    Með hvatningu og góðum kveðjum Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri.
Lesa fréttina Áfallasaga kvenna - bæjarstjóri hvetur konur til þátttöku
Afsláttur af árskorti í Sundlaug Akureyrar fyrir starfsmenn bæjarins

Afsláttur af árskorti í Sundlaug Akureyrar fyrir starfsmenn bæjarins

Minnum á að eftirfarandi tilboð er í boði fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar: 50% afsláttur af árskorti í Sundlaug Akureyrar. Starfsmenn þurfa að sýna hausinn á síðasta launaseðli.
Lesa fréttina Afsláttur af árskorti í Sundlaug Akureyrar fyrir starfsmenn bæjarins
Ari Orrason forseti bæjarstjórnar unga fólksins er lengst til vinstri og þá  standa í röð frá vinstr…

Samfélagstíðindi - Bæjarstjórn unga fólksins fundaði

Á dögunum fundaði bæjarstjórn unga fólksins sem skipuð er fulltrúum ungmennaráðs. Ungmennin sáu um undirbúning að dagskrá og var fundurinn öllum opinn. Bæjarstjórn unga fólksins kom með fjölmargar góðar tillögur sem vísað var til umfjöllunar bæjarráðs, s.s. varðandi samgöngumál, umhverfismál, skólamáltíðir, aðstöðu fyrir sjósund við Pollinn og fleira.
Lesa fréttina Samfélagstíðindi - Bæjarstjórn unga fólksins fundaði

Umsóknarfrestur til námsleyfa sérmenntaðs starfsfólks framlengdur

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest um námsleyfi sérmenntaðs starfsfólks til 22.apríl nk. Samkvæmt "Samþykkt um námsleyfi sérmenntaðs starfsfólks Akureyrarbæjar" auglýsir fræðslunefnd Akureyrarbæjar hér með eftir umsóknum til námsleyfa á árunum 2019-2020.
Lesa fréttina Umsóknarfrestur til námsleyfa sérmenntaðs starfsfólks framlengdur