Starf og staða á launaseðli

Samkvæmt kjarasamningum er vinnuveitanda skylt að birta starfsheiti starfsmanna á launaseðlum eins og þau eru skilgreind í kjarasamningum eða starfsmati.

Á launaseðlum hjá Akureyrarbæ eru þess vegna birt tvö starfsheiti annars vegar starf sem er starfsheiti samkvæmt kjarasamningi eða starfsmati og hins vegar staða sem er starfsheiti samkvæmt starfslýsingu viðkomandi starfsmanns.

Staða er embætti/staða sem setin er af einum starfsmanni skv. starfslýsingu.

Dæmi: Hjúkrunarfræðingur Lögmannshlíð, Kennari Síðuskóla og Verkstjóri vinnuskóla. Þetta eru starfsheiti sem notuð eru dagsdaglega í allri umræðu og við undurritun bréfa t.d. Heiti á stöðu er hægt að breyta án mikillar fyrirhafnar eftir þörfum að ósk stjórnenda, en þó er þess gætt að ákveðið samræmi sé viðhaft milli hinna ýmsu stofnana og starfa.

Starf er yfirheiti yfir margar stöður og er þar stuðst við starfsheiti skv. kjarasamningi eða starfsmati sem launaröðun byggir á.

Dæmi: Hjúkrunarfræðingur Lögmannshlíð er í starfinu Hjúkrunarfræðingur 3 ásamt mörgum öðrum hjúkrunarfræðingum hjá Akureyrarbæ.
Nú þegar starfsmat aðildarfélaga BHM er að koma til framkvæmda birtist starfsheiti í starfsmati sem viðkomandi starf er tengt við sem starf á launaseðli.

Dæmu um starfsheiti í starfsmati BHM er:
ÞÍ – BHM 53 – Þroskaþjálfi (málefni fatlaðra.Fremst í heitinu er skammstöfun félagsins sem um ræðir, síðan kemur númer starfsins í starfsmati BHM og að lokum starfsheitið sjálft.

Hér er síðan dæmi um hvernig starf og staða birtist á launaseðlum Akureyrarbæjar:

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan