Jafnlaunastjórnun

Launagreining 2023: Niðurstaða launagreiningar 

Jafnlaunastefna Akureyrarbæjar er í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020. Stefnunni er ætlað að tryggja að jafnréttis sé gætt við allar launa- og kjaraákvarðanir sem er ennfremur tilgreint og stefnufest bæði í Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar og mannauðsstefnu.

Þar segir m.a. að "Launaákvarðanir skulu vera gagnsæjar, byggðar á málefnalegum forsendum og miða að því að greiða starfsfólki sömu laun og sömu kjör fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf. Störf skulu taka mið af þeim kröfum sem þau gera og laun skulu ákvörðuð í samræmi við kröfur starfa óháð kyni. Allar launa- og kjaraákvarðanir skulu vera
rekjanlegar og skjalfestar. Akureyrarbær greiðir laun í samræmi við gildandi kjarasamninga á hverjum tíma, samþykktir og reglur Akureyrarbæjar. Samband íslenskra sveitarfélaga fer með umboð um gerð kjarasamninga fyrir hönd sveitarfélagsins. Stefna Sambands íslenskra sveitarfélaga er að þróa áfram starfsmatskerfið SAMSTARF í samstarfi við stéttarfélög."

Jafnlaunastefnu Akureyrarbæjar er að finna á slóðinni https://www.akureyri.is/static/files/01_akureyri.is/pdf/2022/jafnlaunastefna-akureyrarbaejar_samthykkt-i-baejarradi-25.08.22.pdf

English version of Equal pay policy, and other languages is on the website https://www.akureyri.is/en/administration/employment/equal-pay-policy 
Enska útgáfu Jafnlaunastefnunnar og á öðrum tungumálum er að finna á slóðinni https://www.akureyri.is/en/administration/employment/equal-pay-policy

Í jafnlaunastefnunni kemur fram að Akureyrarbær skuldbindur sig m.a. til þess að innleiða jafnlaunastjórnunarkerfi í samræmi við staðalinn ÍST 85:2012, skjalfesta, viðhalda og vinna að stöðugum umbótum og forvörnum. Öðlast og viðhalda Jafnlaunavottun.

Ábendingar, erindi og fyrirspurnir vegna jafnlaunastjórnunarkerfis er hægt að senda í gegnum ábendingarkerfi https://ibuagatt.akureyri.is/abendingar/Complaint.aspx?id=200 

Lykilorð á gæðaskjöl kerfisins og niðurstöður launagreininga má nálgast með því að senda beiðni í gegnum ábendingakerfi. 
Síðast uppfært 26. september 2023