29.feb

Vetrarfrí | Ævintýralandið Narnía

Vetrarfrí | Ævintýralandið Narnía

Laugardaginn 29. febrúar kl. 13:00 verður sýnd fyrsta kvikmyndin í seríunni Ævintýralandið Narnía; Ljónið, nornin og skápurinn, eftir C.S. Lewis.

Fjögur börn eru á flótta vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. Kona og prófessor, taka þau að sér. Einn daginn finna börnin fataskáp og flækjast þar með inn í ævintýraheiminn Narníu. Þar geta dýr talað, galdrar eru viðteknir og hið góða stríðir gegn hinu illa. Ævintýri við hvert fótmál!

Kvikmyndin er með íslensku tali.