7.okt

Sögustund

Sögustund

Í október er bangsamánuður og við lesum bangsasögur.

Í þessari fyrstu bangsasögustund les Eydís barnabókavörður bókina Af því mér þykir svo vænt um þig. 

Húni litli veit mjög margt. Auðvitað er ýmislegt sem Húni skilur ekki enn en það sem skiptir máli veit hann vel.

Bókin Af því mér þykir svo vænt um þig

Sögustundir eru á fimmtudögum klukkan 16:30 inni í barnadeild. Lesnar eru 1-2 bækur, síðan er börnum og foreldrum boðið að staldra við og lita, föndra eða skoða bækur.

Sögustundirnar byrja um miðjan september og eru fram í desember. Þær hefjast svo aftur í janúar og eru fram í maí.

Öll velkomin :)