des

Skiptimarkaður í desember

Skiptimarkaður í desember

Í desember ætlum við að hafa skiptimarkað á kaffihúsi safnsins, Lestur Bistro. Skiptimarkaðurinn fer fram á svörtu borði sem staðsett er hjá afgreiðslu kaffihússins.

Sama fyrirkomulag verður og hefur verið á öðrum skiptimörkuðum Amtsbókasafnsins. Markaðurinn er sjálfbær og fólk má koma með eins mikið og það vill og taka eins mikið og það vill.

Á skiptimarkaðinn má t.d. koma með leikföng, spil, púsl og bækur. Sérstaklega sniðugt fyrir þá sem eiga eftir að finna möndlugjöfina í ár, eða fyrir þá jólasveina sem eru ekki búnir að klára gjafakaupin!

Skiptimarkaðurinn stendur út desembermánuð.