23.okt

Ritlistasmiðja Ungskálda

Ritlistasmiðja Ungskálda

Laugardaginn 23. október frá kl. 10.00-15.30 verður ritlistasmiðja Ungskálda haldin í Menntaskólanum á Akureyri. Markmiðið er að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára því að kostnaðarlausu.
Fyrri hluta dags leiðir rithöfundurinn Fríða Ísberg vinnuna en eftir hádegi verður unnið undir leiðsögn Dóra DNA. Þátttakendum verður boðið upp á létt hádegissnarl frá kl. 12.30-13.00.


Nánar um leiðbeinendur:
Halldór Laxness Halldórsson, f. 1985, betur þekktur sem Dóri DNA, er íslenskur leikari, rithöfundur og uppistandari. Halldór skrifaði og lék í leikritinu Þetta er grín án djóks, ásamt Sögu Garðarsdóttur sem sett var upp af Menningarfélagi Akureyrar árið 2015. Sama ár gaf hann út ljóðabókina Hugmyndir: Andvirði hundrað milljónir, en hún var tilnefnd til Menningarverðlauna DV árið 2016. Bókin hefur nú komið út í Þýskalandi. Haustið 2019 kom út fyrsta skáldsaga Dóra DNA, Kokkáll. Útgefandi er Bjartur. Bókin var ein af tíu söluhæstu skáldsögum landsins í jólabókaflóðinu.
Undanfarin misseri hefur Dóri unnið að sinni næstu skáldsögu, leikritinu Þéttingu hryggðar, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu nýverið, og ýmsum kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum.


Fríða Ísberg, f. 1992, lauk grunnprófi í heimspeki og meistaraprófi í ritlist við Háskóla Íslands. Hún vakti mikla athygli fyrir ljóðabækur sínar, Leðurjakkaveður og Slitförina, en sú síðarnefnda hlaut meðal annars Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Smásagnasafnið Kláði var tilnefnt til sömu verðlauna auk Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Fríða er ein af Svikaskáldum sem sent hafa frá sér þrjú ljóðverk og staðið fyrir margháttuðum viðburðum tengdum ljóðlist. Fyrsta skáldsaga hennar, Merking, er væntanleg um miðjan október.

 

Skráning er til miðnættis 21. október

Skráningareyðublað

Allar nánari upplýsingar og viðburðir eru á www.ungskald.is