12.des

Búðu til þína eigin jólapeysu og styrktu gott málefni

Búðu til þína eigin jólapeysu og styrktu gott málefni

Miðvikudaginn 12. desember kl. 17:00 hleypum við anda jólanna í hjörtu okkar með jólapeysuföndri. 

 
Fyrirkomulag: Til sölu verða peysur frá Rauða krossinum á 500 krónur stykkið sem renna beint til samtakanna
 
Athugið! Töluvert af gömlu jólaskrauti, til að skreyta peysurnar með, verður á staðnum. En ef þú vilt losa þig við jólaskraut þá er allt slíkt vel þegið í föndrið. Meira er betra! 
 

Styrkjum gott málefni, endurvinnum, hlustum á jólalög og föndrum saman jólapeysur! Notaleg samverustund á aðventunni.