Frétt uppfærð 4.4.2024 - Nýtt auðkenni í klukku

Nýtt auðkenni í klukku

Vegna innleiðingar á nýju launakerfi hófst vinna við breytingar á Vinnustund í gær 03.04.2024. Þeirri vinnu er enn ekki lokið og því má reikna með einhverjum truflunum á Vinnustund, Vinnu og smástund áfram.

Ný slóð á Vinnustund er: www.akureyri.vinnustund.is

Við þessar breytingar þarf að:

  • Uppfæra Smástund og skrá sig inn aftur - Sjá leiðbeiningar hér.
  • Allir starfsmenn fá nýtt auðkenni í klukku sem hægt er að nálgast inn á Vinnustund undir sjálfsþjónustunni; Sjálfsþjónusta > Ég > Nánar > Auðkenni í klukku (sjá mynd).

 

 

 

 

 

 

 

 

  • Búið er að uppfæra auðkenni í borðsíma og engin breyting ætti að vera á inn-og útstimplun hjá þeim sem eru með skilgreint auðkenni niður á símanúmer.

Atriði sem enn er unnið að því að flytja yfir og/eða lagfæra:

  • Orlofsstaða er ekki rétt.
  • Vantar vaktir inn hjá vaktavinnustarfsfólki.
  • Leyfisóskir eru ekki komnar inn.
  • Útreikningur á gögnum er ekki réttur.

Það má alltaf reikna með að eitthvað brotni við svona uppfærslu en ef eitthvað er í ólagi skal senda póst á vinnustund@akureyri.is og við afgreiðum fyrirspurnir eins fljótt og auðið er.  

Rósa og Stefanía 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan