Golfmót starfsmanna Akureyrarbæjar og Norðurorku verður haldið þriðjudaginn 14. júní 2022 á golfvellinum við Jaðar. Mæting kl. 16:30

Mynd: Kristófer Knutsen
Mynd: Kristófer Knutsen

Skráning sendist til ellert@akureyri.is  þar sem koma skal fram nafn, vinnustöð, forgjöf og netfang. Skráningu líkur mánudaginn 13. júní kl. 14:00. Fulltrúar golfklúbbsins raða í lið en mótið er 9 holur 3/4 manna Texas scramble mót.

Einu skilyrðin fyrir þátttöku eru tvö:

- Hver golfari þarf að hafa golfsett.

- Vera starfsmaður Akureyrarbæjar eða Norðurorku.

Verðlaun og viðurkenningar í boði. Mótafyrirkomulagið hentar fjöldanum óháð færni og forgjöf, þ.e eitthvað fyrir alla!

Nánari upplýsingar veitir Ellert Örn forstöðumaður íþróttamála ellert@akureyri.is

Hér má sjá fréttir af golmótinu í fyrra

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan