Viðurkenningar fyrir Hjólað í vinnuna 2022

Heilsuráð Akureyrarbæjar veitti nýlega þremur stofnunum bæjarins viðurkenningar fyrir þátttöku í Hjólað í vinnuna sem fór fram 4. - 24. maí.

Stofnanirnar sem hlutu viðurkenningu áttu það allar sameiginlegt að skora yfir 4,5 í hlutfalli daga (fjöldi starfsmanna/fjölda skráðra daga) sem og á lista yfir 10 efstu lið í sínum flokki á landsvísu.

Viðurkenningu heilsuráðs 2022 hlutu Síðuskóli, Heilsuleikskólinn Krógaból og Amtsbókasafnið/Héraðsskjalasafnið.
Flottur árangur hjá frábærum starfsmönnum og við þetta má bæta að Síðuskóli hafnaði í þriðja sæti í sínum flokki á landsvísu og hlaut fyrir það viðurkenningu frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ)! Extra vel gert Síðuskóli!

Heilsuráð óskar starfsmönnum ofantaldra stofnana til hamingju með góðan árangur í Hjólað í vinnuna 2022 sem og þakkar öllum öðrum sem tóku þátt fyrir þeirra framlag. Allir þátttakendur eru sigurvegarar í þessari heilsueflingu þar sem bætt heilsa eru hin æðstu verðlaun.

Takk til þátttakenda fyrir að vera öðrum til fyrirmyndar og hvatningar til að halda áfram að hlúa að hreyfingu og heilsueflingu inn í sumarið og að eilífu.
Meðfylgjandi eru myndir af fulltrúum þessara fyrirmyndarhjólara.

Nánar er hægt að skoða úrslit Hjólað í vinnuna á heimasíðunni https://hjoladivinnuna.is/stadan/allir-vinnustadir-og-tolfraedi/

Góðar stundir og betra sumar!
Heilsuráð Akureyrarbæjar

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan