Útborgun launa um áramót

Föstudaginn 29. desember 2023
Eftirágreiddir fá mánaðarlaun vegna desember og yfirvinnu og álag fyrir tímabilið 13.11.2023-12.12.2023.
Fyrirframgreiddir fá yfirvinnu og álag fyrir tímabilið 13.11.2023-12.12.2023.

Þriðjudaginn 2. janúar 2024
Fyrirframgreiddir fá greidd mánaðarlaun vegna janúar 2024.
Allir starfsmenn Akureyrarbæjar geta skoðað launaseðlana sína inn á www.island.is 

Starfsfólk launadeildar verður í fjarvinnu föstudaginn 29. desember. Erindi til launafulltrúa þurfa því að berast í tölvupósti á launadeild@akureyri.is

Hér er hægt að bóka tíma hjá launafulltrúum Akureyrarbæjar sem Teams-, síma- eða staðfund í Ráðhúsinu.

Starfsfólk launadeildar óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan