Það sem hafa þarf í huga yfir hátíðarnar vegna COVID-19

Barnakór Akureyrarkrikju við jólatréð á Ráðhústorgi
Barnakór Akureyrarkrikju við jólatréð á Ráðhústorgi

Aðventan er gengin í garð og undirbúningur hátíðanna nær fljótlega hámarki. Rík hefð er fyrir því að fólk komi saman og njóti samverunnar og alls þess sem hátíðarnar hafa upp á að bjóða. Fyrir mörg okkar verður þessi tími frábrugðinn því sem við erum vön líkt og með annað á þessu ári. Samt sem áður höfum við ýmsa möguleika á því að gleðjast saman. Sumar athafnir fela í sér meiri áhættu en aðrar og þessar leiðbeiningar innihalda ráðleggingar um það hvernig gott sé að haga málum yfir hátíðarnar.

-Njótum rafrænna samverustunda
-Eigum góðar stundir með heimilisfólkinu
-Veljum jólavini (hverja við ætlum að hitta yfir hátíðarnar)
-Hugum að heilsunni og stundum útivist í fámennum hópi
-Verslum á netinu ef hægt er
-Verum tilbúin með innkaupalista þegar farið er að versla
-Kaupum máltíðir á veitingastöðum og tökum með heim
-Ef við finnum fyrir einkennum sem bent geta til COVID-19 þá er mikilvægt að vera heima, fara í próf og vera í einangrun þar til niðurstaða liggur fyrir.

Heimboð og veitingar
-Látum gesti vita um boðið með góðum fyrirvara svo þeir hafi tækifæri til að fara varlega dagana fyrir boðið.
-Fylgjumst með þróun faraldursins.
-Virðum fjöldatakmarkanir og tryggjum nándarmörk og einstaklingsbundnar smitvarnir.
-Forðumst samskotsboð („pálínuboð") og hlaðborð.
-Geymum handabönd, faðmlög og kossa til betri tíma.
-Hugum að loftræstingu og loftum út á meðan á boðinu stendur.
-Bjóðum upp á grímur ef gestir kjósa, þvoum hendur og sprittum okkur reglulega.
-Takmörkum sameiginlega snertifleti og þrífum þá oft og reglulega.
-Notum grímu og þvoum okkur reglulega um hendur á meðan við útbúum matinn, berum hann fram og göngum frá.
-Takmörkum fjölda fólks í eldhúsinu eða þar sem maturinn er útbúinn og gengið er frá eftir matinn.
-Takmörkum notkun á sameiginlegum áhöldum, svo sem tertuhnífum, kaffikönnum, mjólkurkönnum og svo framvegis.
-Þvoum allt tau eftir hvert boð, svo sem dúka og tauservíettur.
-Forðumst söng og hávært tal, sérstaklega innandyra.

Nánari upplýsingar má finna á covid.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan