Starfslokanámskeið í nóvember – skráning hafin

Starfslokanámskeið verður haldið dagana 21., 23. og 28. nóvember nk. Markmið námskeiðsins er að hjálpa starfsfólki að undirbúa starfslok vegna aldurs, aðlaga sig breyttu lífsmynstri og stuðla að innihaldsríku lífi að starfi loknu. Markhópurinn er starfsfólk eldra en 60 ára og er námskeiðið þátttakendum að kostnaðarlausu.

Samstarfsaðilar: Akureyrarbær, Sjúkrahúsið á Akureyri, Norðurorka, VMA, Kjölur og Eining Iðja.
Staðsetning: Lionssalur á 4. hæð í Skipagötu 14.
Skráning: Hjá mannauðsdeild í síma 460-1062 eða með tölvupósti á annalb@akureyri.is. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 8. nóvember.

Dagskránna má nálgast hér

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan