Skatthlutfall og persónuafsláttur 2023

Öllum launagreiðendum er skylt að draga staðgreiðslu opinberra gjalda frá launum og öðrum staðgreiðsluskyldum greiðslum til launamanna og skila í ríkissjóð. Staðgreiðsla samanstendur af tekjuskatti og útsvari og er fyrirframgreiðsla upp í álagningu opinberra gjalda samkvæmt skattframtölum einstaklinga. Áætluð meðalútsvarsprósenta er 14,67%. Tekjuskattur rennur í ríkissjóð og útsvarið til sveitarfélagsins.

 

Skatthlutfallið 2023 er;

Skattþrep 1: 31,45% af tekjum 0 – 409.986 kr.

Skattþrep 2: 37,95% af tekjum 409.987 - 1.151.012 kr.

Skattþrep 3: 46,25% af tekjum yfir 1.151.012 kr.

 

Persónuafsláttur er 715.980 kr. á ári, eða 59.665 kr. á mánuði.
Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2023.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan