SÍMEY og Starfsmennt í samstarf

Nú hafa SÍMEY og Starfsmennt - fræðslusetur gert með sér samning þess efnis að Starfsmennt fái nokkur sæti fyrir sína félagsmenn á nokkrum námskeiðum sem haldin eru hjá SÍMEY.

Geta því félagsmenn núna skráð sig á námskeið hjá SÍMEY í gegnum vefsíðu Starfsmenntar og fengið þau námskeið sem í boði eru að kostnaðarlausu. Takmarkað magn af sætum er í boði á hverju námskeiði.

Fyrsta námskeiðið sem í boði verður er Mannlegi millistjórnandinn sem hefst 19.september nk. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um það hér.

Einnig verða eftirfarandi námskeið í boði hjá SÍMEY fyrir félagsmenn Starfsmenntar:
Samskipti á vinnustöðum
Starfsmannasamtöl
Hagnýt mannauðsstjórnun

Tekið skal fram að nám og þjónusta Starfsmenntar - fræðsluseturs er félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu og eru Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu og SFR, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu með aðild að Starfsmennt.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan