Sérstök afsláttarkjör á leiksýninguna Fullorðinn

Vilhjálmur B. Bragason, Birna Pétursdóttir og Árni Beinteinn.
Vilhjálmur B. Bragason, Birna Pétursdóttir og Árni Beinteinn.

Starfsfólki Akureyrarbæjar býðst nú sérstakur afsláttur á leiksýninguna Fullorðinn, föstudaginn 27. ágúst kl. 21:00. Sýningin fer fram í Hofi.

Hér getur þú bókað miða á sýninguna með afslætti.

Fullorðið fólk á að vita hvað það er að gera! Staðreyndin er hinsvegar að enginn veit hvað hann er að gera og allir eru að þykjast. Það vekur upp stórar spurningar um það hvenær og hvort maður verði nokkurn tímann fullorðinn? Við leggjum upp í ferðalag um fullorðinsárin og restina af þessari afplánun sem flestir kalla mannsævi!
Sprenghlægilegur gamanleikur um það skelfilega hlutskipti okkar allra að verða fullorðin og misheppnaðar tilraunir okkar til að sannfæra aðra um að við séum það.

Nánari upplýsingar má finna á www.mak.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan