Orð mánaðarins: Umhleypingar

Orð mánaðarins er umhleypingar.

Umhleypingar = storma- og úrkomusöm veðrátta með frosta- og hlákuköflum á víxl. 

Orðið var sent til ritstjórnar frá góðum starfsmanni bæjarins. 

Höfum við ekki öll gott og gaman af því að bæta orðaforðann okkar. Þessi fréttaliður á starfsmannavefnum er til þess gerður að auka orðaforða okkar og skorum við á starfsmenn að taka upp nýtt orð hvern mánuð fyrir sig.

Við hvetjum starfsfólk til þess að senda okkur skemmtileg orð eða orðatiltæki á starfsmannahandbok@akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan