Orð mánaðarins: Borubrattur

Orð mánaðarins er borubrattur.
Hann er borubrattur, hún er borubrött, það er borubratt; borubrattur - borubrattari – borubrattastur

Borubrattur = góður með sig, sjálfsánægður. 
DÆMI: ráðherra er venjulega borubrattur þegar hann er að lýsa afrekum sínum

Höfum við ekki öll gott og gaman af því að bæta orðaforðann okkar. Þessi fréttaliður á starfsmannavefnum er til þess gerður að auka orðaforða okkar og skorum við á starfsmenn að taka upp nýtt orð hvern mánuð fyrir sig.

Við hvetjum starfsfólk til þess að senda okkur skemmtileg orð eða orðatiltæki á starfsmannahandbok@akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan