Miðaldadagar á Gásum 20. og 21. júlí frá kl. 11-17 - Afsláttur fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar

Miðaldadagar á Gásum verða haldnir 20. og 21. júlí. Þá mun miðaldakaupstaðurinn rísa á hinum forna verslunarstað Gásum.

Miðaldadagar eru einstök upplifun og í boði verður fjölbreytt dagskrá. Kaupmenn selja miðaldavarning, handverksfólk við vinnu, bókfell unnið úr skinnum, vattarsaumur, leirverk, smjörgerð, tréskurður, bardagamenn, eldsmiðir, völva, seiðkona, kaðlagerð, knattleikur, bogfimi, grjótkast, örleikrit, leiðsögn um svæðið og ýmsar uppákomur. Gestum gefst tækifæri til þess að upplifa fortíðina, hitta Gásverja, kynnast daglegum störfum og jafnvel fá að prófa eitt og annað.

Starfsmenn Akureyrarbæjar frá 25% afslátt á Miðaldadaga 2019.
Verð með afslætti
Fullorðnir 1200 kr.-
Börn 600 kr.-
Fjölskyldumiði 3750 kr.-
Sért þú minni en miðaldasverð færð þú frítt inn.
Aðgangsnirstið gildir báða dagana.

Til þess að virkja afsláttinn þurfa starfsmenn að sýna haus á launaseðli. Miðasala við inngang.
Takið helgina frá til þess að ferðast aftur til fortíðar.

Nánari upplýsingar um dagskrána á www.gasir.is eða á facebooksíðunni Miðaldadagar á Gásum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan