Ert þú að nýta persónuafsláttinn?

Núverandi starfsmenn geta séð nýtingu persónuafsláttar á launaseðlinum inn á eg.akureyri.is

Nýr starfsmaður sem hefur í hyggju að nýta persónuafslátt sinn í starfi hjá Akureyrarbæ þarf að skila inn upplýsingum um nýtingu persónuafsláttar. Upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi 7 virkum dögum fyrir útborgunardag.

Hægt er að láta fylgja yfirlit frá Skattinum. Athugið að ef upplýsingar frá Skattinum eru sóttar fyrir 15. dag mánaðar er að öllum líkindum ekki búið að skila staðgreiðslu vegna fyrri mánaðar og þ.a.l. kann að vera að uppgefin staða á nýttum afslætti sé ekki rétt.

Til þess að skrá persónuafslátt hjá Akureyrarbæ er farið á þjónustugátt Akureyrarbæjar.

Nota þarf rafræn skilríki eða Íslykil við innskráningu í þjónustugáttina.

Smellt á umsóknir efst á síðunni

Undir ''Launa, mannauðs- og starfsmannamál'' er svo að finna umsóknir til nýtingar eða lokunar persónuafsláttar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan