Hvað er að frétta af Plastiðjunni Bjargi – Iðjulundi?

Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir forstöðumaður Plastiðjunnar Bjargs-Iðjulundar sagði okkur frá starfseminni.

Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur (PBI) er staður starfsendurhæfingar og starfsþjálfunar auk þess að vera vinnustaður fyrir fatlað fólk í ótímabundinni ráðningu. Uppistaða verkefna er létt iðnaðarframleiðsla og þjónusta. Framleitt er m.a. raflagnaefni, kerti, búfjármerki, mjólkursíur, diskaþurrkur, klútar og skilti.

Aðal varan okkar er raflagnaefni sem við steypum sjálf og gerum klárt til sölu en við seljum líka bændum búfjármerki og  kúabændum mjólkursíur sem við erum að sauma. Einnig erum við að framleiða kerti bæði útikerti og handdýfð veislukerti.

 Hjá okkur eins og öðrum hefur Covid-19 haft áhrif á starfsemi okkar og við höfum ekki getað gert allt það sem okkur langar til að gera en með skipulagi og sveigjanleika okkar frábæra starfsfólks hefur þetta nú allt saman gengið þó að ýmis verkefni bíði betri tíma. PBI fékk til dæmis styrk frá Erasmus+ til að kynna sér sambærilegan vinnustað í Portúgal sem er að vinna mikið með uppbrot á vinnustaðnum sínum til að skapa minningar og hafa þannig áhrif á félagsleg gildi og stuðla þannig að góðum starfsanda. Þetta verkefni bíður bara betri tíma þó undirbúningur sé hafin á fullu.

Við á PBI leggjum áherslu á að vera í sambandi við aðra vinnustaði sem eru sambærilegir og hefur oft verið gestkvæmt á PBI þó allt sé lokað tímabundið núna.

Hér er hópur frá Berlín sem vinnur á sambærilegum vinnustað og PBI. Hópurinn stoppaði hluta úr degi, fékk kynningu á starfseminni og tækifæri til að prófa hin ýmsu störf sem í boði eru á PBI. Þetta var í annað sinn sem við fengum heimsókn frá þessum vinnustað.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan