Grunnnámskeið fyrir starfsfólk í vaktavinnu

Verkefnastjórn betri vinnutíma í vaktavinnu býður starfsfólki í vaktavinnu hjá Reykjavíkurborg, ríki, sveitarfélögum og á sjálfseignarstofnunum að koma á grunnnámskeið í betri vinnutíma í vaktavinnu.

 

Á námskeiðinu verður farið yfir:

•Helstu atriði kerfisbreytingar betri vinnutíma í vaktavinnu, sem tekur gildi 1. maí 2021.
•Þátttakendum verða veittar greinargóðar upplýsingar um allt fræðsluefni sem aðgengilegt er á www.betrivinnutimi.is
•Þátttakendum verður leiðbeint um hvernig þeir geta aflað sér frekari þekkingar á eigin spýtur.

Námskeiðið fer fram á teams og er klukkustundarlangt.

Grunnnámskeiðið er starfsfólki að kostnaðarlausu.

Auglýst hafa verið fjögur grunnnámskeið:

11. janúar

12. janúar

15. janúar

18. janúar

Skráningar eru á vef Starfsmenntar www.smennt.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan