Fjölbreytt námskeið í boði hjá SÍMEY

Vakin er athyli á fjölbreyttum námskeiðum sem eru í boði hjá SÍMEY.  Sjá nánar hér.
Hlutverk SÍMEY er að efla símenntun og auka samstarf milli atvinnulífs og skóla, og styrkja þannig samkeppnishæfni fyrirtækja og stofnana á svæðinu. SÍMEY stuðlar að því að einstaklingar á Eyjafjarðarsvæðinu hafi aðgang að hagnýtri þekkingu á öllum skólastigum.
Samstarfsaðilar eru allir þeir sem vinna að eða bjóða upp á fræðslu, innan eða utan hefðbundinna menntastofnana, hvort sem um er að ræða starfsmenntun, tómstundanám, bóklega eða verklega fræðslu.
SÍMEY leggur áherslu á að miðla, safna og vinna úr upplýsingum og skapa þannig möguleika á markvissari og árangursríkari uppbyggingu á fræðslu.

Minnum ykkur á að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan