Endurmenntunarsjóður grunnskóla opnar fyrir umsóknir

Endurmenntunarsjóður grunnskóla auglýsir eftir umsóknum í sjóðinn vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2020-2021. Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2020.

Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ) geta sótt um framlög úr sjóðnum.

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.

 

Nánari upplýsingar má nálgast hérna. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan