Bleiki dagurinn haldinn hátíðlegur 13. október

Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í hinum bleika októbermánuði, þar sem landsmenn sýna samstöðu og klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi til þess að vekja athygli á átaki Bleiku slaufunnar og baráttunni gegn krabbameini hjá konum.

Starfsfólk Akureyrarbæjar lét ekki sitt eftir liggja og héldu bleika daginn hátíðlegan og klæddust margir fagurbleikum flíkum.

Það var glatt á hjalla og greinilegt að bleiki liturinn var í fyrirrúmi á vinnustöðum Akureyrarbæjar

                                    

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan