Alþjóðlegi hrósdagurinn á morgun 1. mars

Á morgun 1. mars er Alþjóðlegi hrósdagurinn. Allir hafa efni á að hrósa og allir græða á því. Það er fátt sem gleður meira, gefur meiri orku og gerir fólk ánægðara en hrós sem er sett fram af einlægni. Hrós felur í sér kærleika og lætur aðra finna að við kunnum að meta þá.

Meðfylgjandi er gleðikort frá VIRK sem hægt er að nota til að hrósa samstarfsmanni, maka, systkini, vini eða nágranna rafrænt.

Gerum 1. mars að alvöru hrósdegi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan