Smíði nýju Miðgarðakirkjunnar mjakast áfram

Myndir: Anna María Sigvaldadóttir
Myndir: Anna María Sigvaldadóttir

Grímseyingar láta ekki deigan síga og halda staðfastlega áfram vinnu við að klára byggingu nýrrar Miðgarðakirkju. Fyrr í vikunni var tekin staða á öllu efni sem tiltækt er og lokið var við að einangra kirkjuturninn.

Allir sem vettlingi geta valdið vinna í sjálfboðavinnu við bygginguna undir stjórn Herberts Hjálmarssonar yfirsmiðs sem hefur komið nokkrar ferðir út í eyju síðan í haust og hjálpað við skipulag og framkvæmd verksins.

Að sögn Alfreðs Garðarssonar, formanns sóknarnefndar, miðar verkinu ágætlega og standa vonir til að í næstu ferð smiðsins út í eyju verði hægt að lekta kirkjuna (undirbúa veggi fyrir raflagnir og klæðningu) og flota gólfið, auk þess að ganga frá stuðlabergssteinum undir altarið.

Í liðinni viku fékk kirkjan 300.000 króna styrk úr samfélagsverkefnasjóði Norðurorku 2024 sem kemur sér ákaflega vel. Þrátt fyrir að íbúar séu fúsir til að vinna alla þá sjálfboðavinnu sem þarf þá er óhjákvæmilegt að greitt sé fyrir bæði efni og sérþekking fagmanna, auk þess sem flutningur á efni og fólki er kostnaðarsamur.

   

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan