Úthlutun byggðakvóta

Mynd: Friðþjófur Helgason.
Mynd: Friðþjófur Helgason.

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 652/2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015:

Vesturbyggð (Patreksfjörður)

Kaldrananeshrepp (Drangsnes)

Akureyri (Hrísey og Grímsey)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 999/2014 í Stjórnartíðindum.

Vesturbyggð (Brjánslækur/Barðaströnd og Bíldudalur)

Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur og Hauganes)

Strandabyggð (Hólmavík)

Sveitarfélagið Hornafjörð

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2014.

Fiskistofa 14. nóvember 2014

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan