Nýtt slitlag í Grímsey

Mynd: Anna María Sigvaldadóttir
Mynd: Anna María Sigvaldadóttir

Undanfarið hafa verið miklar framkvæmdir í gangi í Grímsey. Búið er að leggja nýtt slitlag á flugbrautina og á veginn frá flugvellinum og að höfninni. Í nótt var síðan unnið að því að leggja nýtt slitlag á göturnar í þorpinu. Fyrirtækið Árni Helgason ehf. á Ólafsfirði sér um framkvæmdirnar og er með um 10 manna hóp í verkefninu sem er kostað af Isavia, Vegagerðinni og Akureyrarbæ.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan