Nýja kirkjan orðin fokheld

Ný Miðgarðakirkja í sólsetrinu. Mynd: Nikolai Galitzine.
Ný Miðgarðakirkja í sólsetrinu. Mynd: Nikolai Galitzine.

Að reisa byggingar í Grímsey, nyrstu byggð Íslands, krefst mun meiri fyrirhafnar og kostnaðar en í landi. Til eyjarinnar þarf að flytja allt byggingarefni sjóleiðina og sömuleiðis jarðefni, s.s. möl og sand. Varðskipið Þór, skip Landhelgisgæslu Íslands, lagði upp í reglulega eftirlitsferð frá Reykjavík í síðustu viku og tók með sér stuðlabergsskífur sem fara á þak nýju kirkjunnar. Í gærmorgun kom skipið til Grímseyjar og efnið var flutt á gúmbátum í land. Fyrr í sumar kom skipið með timbur og grjót til kirkjubyggingarinnar.

Á dögunum var kirkjan orðin fokheld og turninum komið fyrir á sínum stað. Á næstu dögum hefst vinna við að koma stuðlabergsskífunum fyrir á þaki kirkjunnar og að klæða hana með lerki að utan. Þann 21. september næstkomandi er ár liðið frá bruna hinnar gömlu Miðgarðakirkju. Þann dag munu Grímseyingar og gestir koma saman í nýju kirkjunni og gleðjast yfir vel unnu verki. Friðrik Ómar Hjörleifsson tónlistarmaður, er meðal þeirra koma fram, en húsið er sérstaklega hannað til tónlistar- og menningarviðburða, auk helgihalds.

Í vetur verður kirkjan innréttuð og næsta vor gengið frá umhverfi hennar, en jarðrask varð umtalsvert meira en búist var við vegna fornleifafundar og vætutíðar í sumar. Fyrirhugað er að vígja nýja Miðgarðakirkju sumarið 2023 en nú er unnið að því að ljúka fjármögnun hennar.

Hægt er að fylgjast með gangi fjársöfnunarinnar á heimasíðunni, www.grimsey.is/kirkja.

Þau sem vilja leggja Miðgarðakirkju lið eru minnt á söfnunarreikninginn:

Kennitala: 460269-2539
Reikningsnúmer: 565-04-250731


Stuðlabergsskífur fluttar að landi. Mynd: Inga Lóa Guðjónsdóttir.


Turn kominn á kirkjuna og skrúðhúsið nýja til hliðar. Mynd: Inga Lóa Guðjónsdóttir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan