Ný kirkja rís í Grímsey

Mynd: Nikolai Galitzine
Mynd: Nikolai Galitzine

Skóflustunga að nýrri Miðgarðakirkju í Grímsey var tekin í byrjun maí á þessu ári og í sumar hefur verið unnið ötullega að uppbyggingunni.

Hilmar Páll Jóhannesson frá Loftkastalanum sem sér um smíðina segir að verkið gangi vel þótt slæmt veður í lok júlí hafi tafið framkvæmdir. Starfsmenn á vegum Loftkastalans mættu aftur út í Grímsey um miðjan ágúst og stefna að því að loka kirkjunni fyrir lok september, gera hana fokhelda fyrir veturinn.

Söfnun fyrir byggingu kirkjunnar gengur mjög vel. Áætlaður heildarkostnaður við fullfrágengna kirkju er um 120 milljónir króna. Í vor þegar fyrsta skóflustungan var tekin vantaði um 50 milljónir upp í kostnaðaráætlun og var þá sett af stað söfnunarátak sem hægt er að fylgjast með á heimasíðu Grímseyjar www.grimsey.is/kirkja.

Ennþá vantar tæplega 30 milljónir svo hægt sé að ljúka við kirkjusmíðina. Vonir standa til að sú fjárhæð safnist í vetur og hægt verði að vígja nýja Miðgarðakirkju sumarið 2023 en hún mun einnig þjóna hlutverki tónlistar- og menningarhúss.

Söfnunarreikningur Miðgarðakirkju:
Kennitala: 460269-2539
Reikningsnúmer: 565-04-250731

Nánari upplýsingar veitir:
Arna Björg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri kirkjubyggingar, arna@ssne.is
, s. 896 2339
Alfreð Garðarsson, formaður sóknarnefndar Miðgarðakirkju, s. 896 3048

Hér að neðan má sjá myndir frá framkvæmdum við byggingu kirkjunnar sem Anne-Lise Stangenes, Hilmar Páll Jóhannesson og fleiri hafa tekið.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan