Þýska ríkissjónvarpið ARD í Grímsey

Sjónvarpsfólkið í kaffipásu í Grímsey.
Sjónvarpsfólkið í kaffipásu í Grímsey.

Í síðustu viku var sjónvarpsfólk frá þýsku ríkissjónvarpsstöðinni ARD statt í Grímsey við tökur á heimildaþætti um þorp og bæi við heimskautsbaug. Auk þess að taka upp efni í Grímsey er förinni heitið til Rússlands, Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Grænlands. Frá ARD komu Klaus Scherer, fréttamaður, Sandra Kotth, myndatökumaður, Kristian Baum, 2. myndatökumaður, Helmut Hansen hljóðmaður og Angela Andersen framleiðandi.

Þættirnir munu fræða áhorfendur um sögu, vísindi, landslag og lifnaðar- og atvinnuhætti staðanna. Afraksturinn verður svo sýndur í tveimur 45 mínútna löngum þáttum í desember.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan