Pósthús

Pósthús í Gallerí Sól 
611 Grímsey
Sími: 467 3190

Póstafgreiðsla er í Gallerí Sól og fylgir því opnunartíma búðarinnar. Opið á ferjudögum yfir sumartímann; mánudaga, miðvikudaga og föstudaga meðan ferjan bíður. Þar er auk póstkorta, frímerkja og sendinga boðið upp á grímseyskt handverk og handavinnu frá fastalandinu; minjagripi, kort og bækur frá Grímsey. Þar er einnig til húsa minnsta kaffihús landsins sem býður upp á nýbakaðar vöfflur og fleira.