Austursíða 2, 4 og 6 - Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030

Austursíða 2-6
Austursíða 2-6

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.

Breytingin tekur til Austursíðu 2, 4 og 6 í síðuhverfi og felur í sér að svæðið verði skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði með heimild fyrir íbúðum á hluta svæðisins. Svæðið er í dag skilgreint sem athafnasvæði - AT7.

Skipulagslýsinguna má nálgast hér. Einnig er hægt að nálgast gögnin hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 10. apríl til 1. maí 2024.

Hægt er að skila inn athugasemdum og ábendingum um skipulagstillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is, bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri eða á skipulagsgatt.is, til og með 30. apríl nk.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan