Stjórn Akureyrarstofu

148. fundur 08. október 2013 kl. 16:00 - 16:50 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Matthías Rögnvaldsson áheyrnarfulltrúi
  • Unnsteinn Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Reglur um útimarkaði og sölutjöld á Akureyri

Málsnúmer 2005080075Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd gerði á fundi sínum þann 11. september 2013 eftirfarandi bókun: "Skipulagsnefnd leggur til að reglunum verði vísað til vinnuhóps um endurskoðun þeirra sem skipaður yrði tveimur fulltrúum skipulagsnefndar, einum fulltrúa Akureyrarstofu og einum fulltrúa miðbæjarsamtaka Akureyrar.
Skipulagsnefnd tilnefnir Evu Reykjalín Elvarsdóttur og Edward Hákon Huijbens í vinnuhópinn og óskar eftir tilnefningu fulltrúa Akureyrarstofu og miðbæjarsamtakanna í vinnuhópinn."

Stjórn Akureyrarstofu tilnefnir Huldu Sif Hermannsdóttur verkefnisstjóra viðburða og menningarmála á Akureyrarstofu í vinnuhópinn fyrir sína hönd.

2.Landsmót kvennakóra á Akureyri 2014 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2013100090Vakta málsnúmer

Erindi dags. 25. september 2013 frá Snæfríð Egilson f.h. Landsmóts kvennakóra, þar sem óskað er eftir styrk og aðstoð til að halda mótið á Akureyri á næsta ári.

Styrkumsóknin rúmast ekki innan fjárhagsramma yfirstandandi árs og verður tekin fyrir að nýju með öðrum umsóknum í byrjun næsta árs.

3.AK EXTREME 2014 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2013100091Vakta málsnúmer

Erindi dags. 8. september 2013 frá Hreggviði Ársælssyni f.h. snjóbrettahátíðarinnar AK EXTREME, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 1.000.000 vegna mótsins sem fyrirhugað er á Akureyri á næsta ári.

Styrkumsóknin rúmast ekki innan fjárhagsramma yfirstandandi árs og verður tekin fyrir að nýju með öðrum umsóknum í byrjun næsta árs.

4.Friðbjarnarhús - leikfangasýning

Málsnúmer 2010050060Vakta málsnúmer

Guðbjörg Ringsted f.h. Leikfangasýningarinnar í Friðbjarnarhúsi hefur óskað eftir því að Akureyrarstofa styðji áfram við sýninguna með því að leggja til aðstöðuna í húsinu.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að framlengja samning um afnot af húsinu um 1 ár.

Fundi slitið - kl. 16:50.