Stjórn Akureyrarstofu

209. fundur 10. maí 2016 kl. 17:00 - 18:40 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Menningarfélag Akureyrar

Málsnúmer 2014090088Vakta málsnúmer

Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar og Sigurður Kristinsson formaður stjórnar félagsins komu á fundinn til að fara yfir rekstar- og verkefnastöðu félagsins.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar þeim Þuríði og Sigurði fyrir komuna og greinargóða upplýsingagjöf.

2.Gásakaupstaður - skipun fulltrúa í stjórn 2016

Málsnúmer 2015050010Vakta málsnúmer

Skipa þarf nýjan fulltrúa í stjórn Gásakaupstaðar ses.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa Maríu Helenu Tryggvadóttur verkefnisstjóra ferðamála á Akureyrarstofu sem fulltrúa sinn í stjórnina.

3.Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2016

Málsnúmer 2016030068Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar rekstraryfirlit málaflokka stjórnar Akureyrarstofu fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2016.

Fundi slitið - kl. 18:40.