Skólanefnd

12. fundur 18. ágúst 2014 kl. 14:00 - 17:52 Giljaskóli
Nefndarmenn
  • Dagný Þóra Baldursdóttir varaformaður
  • Pétur Maack Þorsteinsson
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Heimsóknir í skóla

Málsnúmer 2014080063Vakta málsnúmer

Skólanefnd heimsótti Giljaskóla og leikskólann Kiðagil. Gengið var um húsnæði skólanna og starfsemin kynnt. Um kynninguna sáu skólastjórar skólanna Jón Baldvin Hannesson í Giljaskóla og Inda Björk Gunnarsdóttir í Kiðagili.

2.Fræðslustjóri - uppsögn og ráðning

Málsnúmer 2014060018Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir umsóknum um stöðu fræðslustjóra og áætluðu ráðningarferli.

3.Langtímaáætlun - fræðslumál

Málsnúmer 2013020252Vakta málsnúmer

Á fundinum var farið yfir markmið langtímaáætlunar skólanefndar.

4.Rekstur fræðslumála 2014

Málsnúmer 2014050003Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lagt fram til kynningar stöðumat í rekstri málaflokksins eftir fyrstu sex mánuði ársins.

5.Grímseyjarskóli 2014

Málsnúmer 2014010146Vakta málsnúmer

Foreldrar leikskólabarna í Grímsey óska eftir að leikskóladeildin verði opin í 6 tíma á dag 5 daga vikunnar frá haustinu 2014. Alls verða 5 börn á deildinni og munu sölutímar verða um 27 tímar ef af þessu verður.

Skólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

6.Göngum í skólann

Málsnúmer 2014080040Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. júlí 2014 vegna verkefnisins "Göngum í skólann". Þar eru stjórnendur sveitarfélaga hvattir til að hvetja skóla á sínu svæði til þátttöku og auðvelda foreldrum og börnum að velja virkan ferðamáta. Það má gera t.d. með því að tryggja öryggi barna í umferðinni með virkum aðgerðum. Verkefnið hefst 10. september næstkomandi.

Skólanefnd hvetur grunnskólana á Akureyri til að taka virkan þátt í verkefninu.

7.Minni ásókn fagfólks í störf í leikskólum

Málsnúmer 2014070010Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. júlí 2014 frá Guðbjörgu Sesselju Jónsdóttur f.h. samtaka sjálfstæðra skóla. Þar er lýst áhyggjum af því að færra fagfólk sækir í störf í leikskólum. Í ljósi þess er bent á að starfsheitið leikskólaliði er ekki talið með fagfólki í öllum sveitarfélögum þegar gefið er upp hlutfall fagfólks í leikskólunum. Óskað er eftir því að sveitarfélög samræmi túlkun sína á því hvaða starfsheiti falla undir hugtakið fagfólk og fari þá eftir túlkun Reykjavíkurborgar og Hagstofu Íslands þar sem starfsheitið leikskólaliði er talið með fagfólki. Málið var áður á dagskrá skólanefndar 13. ágúst 2014.

Skólanefnd þakkar fyrir erindið en samþykkir að vísa því til Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fundi slitið - kl. 17:52.