Íþróttaráð

137. fundur 05. september 2013 kl. 14:00 - 16:09 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá
Ragnheiður Jakobsdóttir áheyrnarfulltrúi D-lista boðaði forföll.

1.Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, fyrir akstursíþrótta- og skoðsvæði á Glerárdal, og umhverfisskýrslu - beiðni um umsögn frá íþróttaráði

Málsnúmer 2013080181Vakta málsnúmer

Erindi dags. 15. ágúst 2013 frá skipulagsdeild Akureyrarbæjar þar sem beðið er um umsögn frá íþróttaráði á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, fyrir akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal.

Íþróttaráð gerir ekki athugasemdir við breytingar á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, fyrir akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal.

2.Íþróttadeild - langtímaáætlun

Málsnúmer 2013030343Vakta málsnúmer

Unnið að langtímaáætlun málefna sem heyra undir íþróttaráð.

Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að langtímaáætlun fyrir íþróttamál og vísar til bæjarráðs.

3.Fjárhagsáætlun 2014 - íþróttaráð

Málsnúmer 2013080071Vakta málsnúmer

Drög að gjaldskrá Skíðastaða í Hlíðarfjalli, umræður og vinna vegna fjárhagsáætlunar fyrir starfsárið 2014.
Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Guðmundi Karli fyrir komuna.

Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að gjaldskrá Skíðastaða í Hlíðarfjalli og vísar til bæjarráðs.

Árni Óðinsson S-lista vék af fundi kl. 15:49.

4.Nökkvi, félag siglingarmanna Akureyri - ósk um fjárstuðning til uppbyggingar og viðhalds öryggismála

Málsnúmer 2013090014Vakta málsnúmer

Erindi sent 2. september 2013, frá Rúnari Þór Björnssyni formanni Nökkva þar sem óskað er eftir fjárstuðningi að upphæð kr. 5.500.000 til uppbyggingar og viðhalds öryggismála hjá klúbbnum.

Íþróttaráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu íþróttamála fyrir starfsárið 2014.

5.Steinnes - beiðni um áframhaldandi leigu á húsinu

Málsnúmer 2013050311Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi frá stjórn Fasteiga Akureyrarbæjar sem á fundi sínum þann 7. júní 2013 gerði eftirfarandi bókun:
Lögð fram beiðni frá Níelsi Karlssyni ábúanda í Steinnesi um að framlengja leigusamninginn um 3 ár.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskar eftir umsögn íþróttaráðs um málið.

Íþróttaráð gerir engar athugasemdir við framlengingu á leigusamningi vegna Steinness.

Fundi slitið - kl. 16:09.