Íþróttaráð

88. fundur 10. mars 2011 kl. 14:00 - 15:50 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Nói Björnsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
Starfsmenn
  • Kristinn H. Svanbergsson fundarritari
Dagskrá

1.Forvarnastefna - endurskoðun

Málsnúmer 2010110033Vakta málsnúmer

Kynnt voru drög að nýrri forvarnastefnu fyrir Akureyri skv. tölvupósti dags. 18. mars 2011 frá samfélags- og mannréttindaráði þar sem þess er óskað að íþróttaráð taki drögin til umsagnar.

Íþróttaráði líst vel á drögin eins og þau liggja fyrir og hvetur aðildarfélög Íþróttabandalags Akureyrar að kynna sér innihald þeirra.

2.Starfsáætlun íþróttaráðs starfsárin 2011-2015

Málsnúmer 2011010053Vakta málsnúmer

Unnið að gerð starfsáætlunar íþróttaráðs fyrir starfsárin 2011-2015.

Fundi slitið - kl. 15:50.