Bæjarstjórn

3483. fundur 10. nóvember 2020 kl. 08:24 - 08:25 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Gunnar Gíslason
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Tímabundin heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga v. neyðarstigs almannavarna

Málsnúmer 2020030426Vakta málsnúmer

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur framlengt tímabundna heimild sveitarstjórna til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi vegna COVID-19. Fyrri heimild gilti til 10. nóvember 2020. Framlengd heimild gildir til 10. mars 2021.

Auglýsingu um ákvörðun ráðherra er að finna á vefsíðu Stjórnartíðinda: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=239299c5-969f-4232-a504-a59615737d8e
Bæjarstjórn samþykkir að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum sveitarstjórnar og nefndum sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að ritun fundargerða geti farið fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins, um ritun fundargerða, nr. 22/2013. Fundargerð fundar þar sem allir fundarmenn eru í fjarfundi skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá í lok fundar og lesin yfir og síðan undirrituð rafrænt. Heimildin gildir til 10. mars 2021.

Fundi slitið - kl. 08:25.